|
|
25.08.2007 23:05:43 / jordan
Jæja það er best að ég bloggi... Langt síðan síðast. Ég er ástfanginn upp fyrir haus þetta viðurkenni ég nú aldrei en hún er æði hún heitir Tina og er hálfgerð kanína allavega látum við svoleiðis þegar við förum niður í bælið mitt hér á begganum. Við kynntumst á netinu ég kolféll fyrir henni því við eigum svo margt sameiginlegt, við eigum alveg eins bíl. En ég seldi minn í gær. Keypti mér nýjan aygo á 1.900.000 hann er með topplúgu og snúningfelgum. Ég er flottastur í bænum u know what I mean ladies Diddi in the house down town drop by anytime. Annars er allt gott að frétta er bara súper hress þessa daga alltaf með tillann á lofti og líður ekki sú stund að ég hugsi ekki um hana Tínu, berjatýnu eins og ég flirta stundum við hana wúhú.. svo margt sem við getum sagt til að æsa hvort annað upp svo er hún líka svo fyndin ég bara get ekki hætt að hlæja stundum. En nóg um Tínu mína ætla samt að senda henni koss hér með *kiss kiss* Tína mín. En ég bý enþá með Davíð við erum soddan hommar í okkur en aldrei í hefur mér dottið í hug að koma við hann... skrítið það ha?? En við ætlum að fara að kaupa okkur hús í Sandgerði saman, með heitumpott og útisnúrum, viljum viðra sængurfötin vel ekki vantar nú sjávarloftið þar á bæ. Tina býr í næsta nágrenni eða í Gerðahreppi svo það er ekki langt að fara. Ætla að fá mér hjól til að hjóla á milli og spara aygoinn minn því ég þarf að bruna í Samskip á hverjum degi og það eyðir nú smá bensíni en bílinn minn er nú diesel wúhú kom ykkur á óvart en þetta sparar skildinginn... einn öl í mánuði allavega... Svo búa vinkonur mínar líka svo stutt frá Sandgerði þið vitið nú um hverjar ég er að tala, aðalskvísurnar sem ég vildi oft kalla kisulórur en hún Tína leyfir mér það ekki lengur. En ég elska þær og sakna afskaplega mikið sérstaklega Telmu því hún kom ekki í partýið síðustu helgi og ég hef ekki séð það fagara fljóð svo lengi. Miss miss Telly mín eins og ég kalla hana stundum. Svona best freinds nick name you know. Bless í bili Diddi berjatýna
Halló halló góðan daginn Diddi minn, gastu nú ekki fundið þér erfiðara password fyrirsjáanlegi gutti Við stöllur vorum ekk lengi að nappa leyniorðið inn á bloggið þitt enda þekkjum við nú vin okkar ansi vel hehe... Hvað er annars að frétta dúddi minn, þú ert nú ekki sá duglegasti að blogga, ættir nú bara að fara að skella þér í heimsókn í Ikea það leynist margt fallegt þar sem gæti heillað þig og þinn sjarma, hægt að fá þær úr tré og uppblásnar bara what ever for you sjarmatröll... En þær eru heldur ekki með myspace alveg eins og þú en það var rosa stuð hjá ykkur feðgum síðustu helgi og við erum að vonast til þess að fá annað boð í svona teiti bara fljótlega... Alveg farnar að sakna þín líka eins og þú sagðist vera farinn að sakna okkar hér fyrir ofan hehe... Knús Diddi okkar. Kveðja Telma og Pálína:haha 
»
24.07.2007 15:35:27 / jordan
Komiði
sæl
Ég hef
ákveðið að brjóta odd af oflæti mínu og henda inn eins og einum
pistli. Reyndar skilst mér að það sé bara gamaldagsfólk sem notar
orðið bloggið í dag því að MySpace er víst málið. En ég held að
þangað fari ég ekki frekar en inní IKEA.
Það sem
kannski brennur mest í brjósti mér þessa dagana er að ég er á leið
í frí frá vinnunni í næstu viku og verð í um 4-5 vikur og er ég
orðinn ansi spenntur fyrir því. Þó ég sé svo sem ekki búinn að vera
lengi í þessu starfi og hef mjög gaman af því þá
er þetta komið alveg ágætt af Samskip í bili og verður frekar gott
að fá að komast í frí og vera heilalaus í nokkrar vikur og koma svo
alveg endurnærður
Byrja
fríið eiginlega á því að skella mér til Eyja á Þjóðhátíðina og verð
ég kominn þangað á fimmtudeginum fyrir fjörið. Maður er einmitt
búinn að taka fram þjóðhátíðadiskana og skella þeim í spilarann til
að fá tilfinninguna í gegnum öll gömlu góðu þjóðhátíðarlögin og svo
er það frekar gaman að Davíð & Siggi Árna verða báðir á
Þjóðaranum í ár með gítarana að sjálfsögðu og hef ég verið að fá
stemminguna beint í æð frá þeim félögum þar sem þeir eru að tína
til & æfa lögin sem þeir ætla að láta hljóma í tjaldinu hjá
Davíð & co. Fullt af frábærum lögum sem þeir eru að bæta við í
sitt góða safn !!
Skrítið
samt við Þjóðhátíðina í ár er það við Bjarni frændi erum einu úr
fjölskyldum okkar sem verða í Eyjum þar sem mamma og pabbi verða á
Íslandi og Ester, Einar og Sara Rós verða í Danmörku eða eitthvað
álíka. Íris systir og Gréta verða ekki og það er spurning hvort mér
takist að plata Óla til að koma svo við Bjarni verðum ekki einu
meðlimirnir úr familíunni á Þjóðhátíð!! Samt reyndar veit ég ekki
með Elvu & co en það kemur væntanlega í ljós.
Undanfarnar tvær helgar hafa verið í meira lagi
skemmtilegar en þannig var mál með vexti að Hlynur Þór fékk
þrjá vini sína frá Danmörku í heimsókn. Heldur
betur hressa stráka og við tókum að okkur að sýna þeim
skemmtanalífið í borginni, báðar helgarnar , báða
dagana!!
En þetta
var nú meira fjörið og ansi gaman að sjá hvað þeir skemmtu sér vel.
Var það handsalað að við Hlynur myndum fara sem fyrst út til þeirra
og endurgjalda þeim heimsóknina. Skelltum okkur í nokkur skipti á
Oliver og Vegamót til skiptis, fórum út að borða og borðuðum
hvalkjöt sem var by the way alveg meiriháttar gott, allir voru
sammála um það en það voru allir að smakka það í fyrsta skiptið en
pottþétt ekki það síðasta !
Nú er
Hlynur Þór einmitt farinn til New York en þessi dekurrófa
skellti sér í gær með Huldu á vit ævintýrana í Stóra Eplinu. Nú
hefur hann farið þangað tvisvar síðan við fórum saman fyrir rúmum
tveimur árum!! Til stendur reyndar að ég fari þangað í haust í
félagi við Óla bró. En hann er að fara þangað á námskeið ásamt
starfsfólkinu á Solid og er hugmyndin sú að ég skelli mér
með sem laumufarþegi, hef reyndar ekki huxað mér að fara með þeim á
námskeiðið en það er þó aldrei að vita. Kannski er ég alveg topp
hárgreiðslumaður en veit bara ekki ennþá að því??? Einnig eru
einhverjar líkur á að Davíð komi með en það myndi nú alls ekki
skemma fyrir........
En úff ég
ætla nú ekki að fara að blogga yfir mig og það er held ég best að
fara varlega af stað aftur, ekki vera að ana
neinu.......
Kv,
Diddi
»
23.04.2007 12:03:24 / jordan
Mér finnst gaman.....
.....að NBA úrslitakeppnin sé
byrjuð
.....að vera byrjaður í nýju starfi sem
leggst þrælvel í kappann 
.....að Bjarni frændi skuli vera
"stundum" fyrirliði ÍBV í fótboltanum
.....að Bjarni frændi sé búinn að kaupa
sé íbúð í Eyjum
.....að Sara frænka skuli vera búin að
fermast og allt heppnaðist frábærlega vel
.....að það sé að koma vor, mér finnst
það skemmteilagasti tími ársins 
.....að í kjölfarið á vorinu kemur svo
sumarið
.....að Manchester United sé með 8
leikmenn að 11 í lið ársins á Englandi
.....að hafa farið í frábæra ferð með
félögum mínum til Manchester og séð United vinna Blackburn á Old
Trafford 4 - 1, meiriháttar ferð
.....að vera til
.....að slaka á eftir langan göngutúr (af
því ég er búinn að fara í einn slíkan nýlega
hahahahaha)
.....að Ragga Gogga hafi boðið mér í
afmælið sitt, takk fyrir það frænka 
.....að halda partý á Begganum eins og
við Davíð gerðum sl. laugardag
.....að allir sem komu í partýið skemmtu
sér konunglega og vil ég nota tækifærið og þakka öllum fyrir komuna
og sitt framlag til skemtunarinnar
.....að Blogga (er það ekki nokkuð
greinilegt) hahahaha
.....að Manchester United hafi orðið
enskur meistari 2007
.....að Chelsea hafi ekki unnið

.....að fólk nenni ennþá að skoða þessa
síðu þrátt fyrir leti minnar við að blogga
Diddinn kveður í bili (vonandi ekki í
mánuði)
»
29.03.2007 14:45:15 / jordan
Hvaða
rugl.....
.....Er það að
Klúbburinn sé á leið til Manchester á morgunn
.....Er það að Örn er búinn að semja vængefna dagskrá fyrir helgina
í Manchester
.....Er það að við séum að fara á Old Trafford á laugardaginn að
sjá Manchester United spila
.....Er það að Eiríkur Hauksson sé ekki lengur rauðhærður
.....Er það að það séu svo bara alveg að koma páskar
.....Er það að sjónvarpsstöðin Sirkus sé orðinn rugluð
.....Er það að Maggi Ella sé kominn í kjörþyngd !!
.....Er það að Hafþór sem vinnur hjá Samskip fór í óvissuferð til
Barcelona með eimskip um seinustu helgi ???
.....Er það að Hafþór mætti í vinnu í tvo daga og flaug svo út til
Englands í morgunn?
.....Er það að Hafþór sem heldur með Arsenal fer á Anfield Road í
Liverpool og borgar þar inn 23.000.-kr. til að sjá Arsenal
tapa......... á heimavelli Liverpool, come on Haffi !!
.....Er það að Sara frænka sé að fara fermast eftir tvær vikur
!!!!!!
.....Er hvað ég er geðveikt ánægður með nýju Toyotuna
.....Er það að ég sé að fara að hætta sem Verkstjóri á
Landflutningum til að gerast Viðskiptastjóri á Innanlandssviði
Samskipa 
.....Er það hvað þessi heimasíða er búin að vera í mikilli lægð
??
.....Er það hvað verður geðveikt stuð á mér, Davíð, Sigga Jóels
& Hlyn Guðjóns í Enlandi 
.....Er hvað ég bið að heilsa ykkur í bili
Hvaða rugl er
þetta eiginlega ??
Kv,
Diddi United
»
19.02.2007 18:22:19 / jordan
»
24.01.2007 15:54:41 / jordan
Sælar 
Jæja þá er þjóðarstoltið alveg að fara með mann enda
enginn smá sigur hjá íslensku strákunum á HM í handbolta á
mánudaginn en sjálfir Frakkarnir, sem eru by the way
evrópumeistarar, voru lagðir af velli öllum að óvörum og ekki var
sigurinn neitt í naumari kanntinum en Ísland gjörsigraði Frakkana
með 8 marka mun og mætti segja að sigurinn hafi aldrei verið í
hættu en samt var maður ekki öruggur og rólegur fyrr en flautað var
til leiksloka. Ísland á það nenfilega til að koma með hinn fræga
“slæma kafla” en sem betur fer kom hann aldrei af neinu viti í
þessum leik og liðið var frábært, Til hamingju Ísland 
Við Davíð og Maren skemmtum okkur konunglega á Begganum yfir þessu
öllu saman, maður hoppaði, gargaði og klappaði allt til skiptist og
ekki skemmdi fyrir að Eyjamaðurinn í markinu hann Birkir Ívar var
alveg frábær þannig að Eyja og þjóðarstoltið gekk nánast frá manni
bara hehehehe….
Vonum bara að strákarnir nái að fylgja þessu eftir og taki
Túnismenn í dag og vinni þá sannfærandi Leikurinn er samt á
frekar leiðinlegum tíma fyrir marga eða kl.16:30 en vonandi ná sem
flestir að sjá allavega seinni hálfleik 
Fótboltalega séð var helgin
handónýt en Man. Utd. tapaði fyrir Arsenal sem var
eðlilega ekki gott enda gat Manchester náð 9stiga forystu á
Chelsea með sigri. Það leit bara nokkuð vel út á að það
tækist á tímabili í leiknum en Manu. voru með 0-1 forystu
lengi vel í seinni hálfleiknum en Arsenal
jafnaði einhverntímann á meðan ég var að horfa á Ísland tapa
fyrir Úkrínumönnum í handbolta og svo var það kóngurinn í
Arsenal hann Thierry Henry sem skoraði náttúrulega sigurmarkið
þegar 3mín. voru komnar yfir venjulegar 90mín. Alveg týpískt
hann!!
Þetta var sem sagt glataður seinnipartur á sunnudeginum,
Manchester tapaði fyrir Arsenal og Ísland tapaði fyrir
Úkraínu
En við höldum áfram með 6stiga forystu á Chelsea þar sem þeir
töpuðu líka
Nota ég samt hér tækifærið og óska Haffa Hotplate kærlega til
hamingju með Arsenal sigurinn um helgina 
Það var eins gott að Óli bró bauð mér í frábæra sunnudagssteik sem
bjargaði alveg deginum, svo var Íris sys og Gréta Dögg líka í mat
þannig að maður er fljótur að gleyma öllu leiðinlegu í svoleiðis
félagsskap. Óli & Gréta buðu svo uppá geggjaðan ís og
heita íssósu í eftirrétt. Svo voru þau með jarðaber og
epli sem við dýfðum ofaní heitu íssósuna og var þetta allsvakalega
gott hjá þeim. Takk fyrir mig og allur pakkinn!
En annars var toppnum á helginni náð á laugardagskvöldið þegar ég
brá mér í fimmtugsafmæli þar sem enginn annar en Sir Elton John
birtist um níu leitið viðstöddum til mikillar ánægju og gleði.
Spilaði poppgoðið í um klukkustund þar sem hann lék alla sína
helstu slagara. Virtist þetta allt saman vera mjög svo
óraunverulegt að sjálfur Elton John væri staddur niðrí
frystigeymslu Samskipa við Holtabakka að spila á píanó og syngja
fyrir gesti og gangandi. Magnað alveg og er það nokkuð víst að
þarna hefur maður farið í eitthvað flottasta, dýrasta og
veigamesta partý sem maður kemst í hérna á Íslandi, í bili að
minnsta kosti Þar sem ég var með miða fyrir tvo ákvað ég að bjóða
Hlyn Þór með mér og skemmtum við okkur alveg eins og kóngar enda
engin ástæða til annars í svona teiti 
Það er samt ekkert mjög langt síðan við Davíð héldum partý í
svipuðum dúr á Begganum þar sem ekki ómerkari maður en Geir
Ólafsson mætti og tryllti lýðinn, maður hefur sko heyrt útundan sér
að fólk er að líkja þessu saman 
Við Davíð toppum þetta bara í vor aftur 
Þetta er gott í bili, áfram
Ísland!
Kv, Diddi
»
16.01.2007 17:52:51 / jordan
Jæja þá er komið að því að henda út einni færslu í ykkur
elskurnar. En það er bara fínt að frétta af Diddanum og sé ég
frammá fínt ár 2007. Vil ég nota tækifærið þótt seint sé og óska
öllum þeim, sem ég hef ekki náð í rassgatið á og einnig þeim sem
detta hérna inná síðuna, Gleðilegs nýs árs og vonandi verður þetta
ár ykkur öllum gæfuríkt og skemmtilegt 
Ok og þá er fyrsti BootCamp tíminn á árinu búinn
og það er alveg magnað en hann var einmitt í hádeginu áðan.
Gaman að vera byrjaður aftur að láta pína sig, að maður skuli taka
þátt í þessari vitleysu hahaha.... nei nei þetta er
náttúrulega bara frábært og svo hefur maður svo gott af
þessu......
Við Hafþór erum allavega mættir aftur til leiks og ætlum ekki að
slá neitt slöku við að þessu sinni frekar en fyrri daginn......
Já ég skellti mér á handboltalandsleikinn á laugardaginn
sl. með Telmu, Huldu & Hlyn Þór en þar sáum
við Íslensku strákana (okkar) spila á móti Tékkum, mikið var
leikurinn lélegur og leiðinlegur. Það eina skemmtilega við hann var
að sjá svakalegar markvörslur hjá Tékkneska markmanninum en hann
varði oft á tíðum stórglæsilega, en svo horfði maður bara á seinni
leikinn í sjónvarpinu og hann var miklu betri þar sem íslendingar
sýndu vonandi sitt rétta andlit Svo er það bara HM hjá
þeim sem byrjar um næstu helgi og ég verð að viðurkenna
það að maður getur pínu æst sig upp þegar kemur að
handboltalandsliðinu en samt ekkert í líkingu við
mömmu en hún getur orðið allsvakalega æst oft á tíðum yfir
leikjunum og stundum er hún sjálfri sér og umhverfi sínu
barasta hættuleg þegar leikirnir verða hvað mest spennandi, já og
pabbi er litlu skárri enda horfa þau sjaldan á leikina í sama
herbergi hahahahahah 
En tilfinningarnar hjá þjóðinni gagnvart handboltalandsliðinu eru
svakalegar miðað við aðrar íþróttagreinar sem við keppum í, það
verður að viðurkennast. Það hafa allir skoðunn á hverjir eiga að
spila, hvenær á að skipta, hver á að vera í marki og allt þar fram
eftir götunum og einmitt í næstu viku verður þessi umræða
tekinn á flestum þeim stöðum sem fólk þessa lands
hittist og ekkert nema bara gaman að því.
Fór tvisvar í bíó í seinustu viku og voru þær ferðir
ansi ólíkar skal ég segja ykkur. Á fimmtudaginn fórum við á The
Black Dahlia ég, Hlynur og Hulda. Myndin fannst mér hreint
leiðinleg og ekkert í hana varið þannig að ég mæli ekki með
henni.
En svo á föstudaginn fórum við Hlynur, erum að spá í að gerast
kvikmyndagagnrýnendur, að sjá "Apocalypto" og hún er góð, allavega
miku betri en hin. Skelltum við okkur í lúxus salinn í Smárabíó og
höfðum það gott. Þessari mynd mæli ég sko með, reyndar löng en það
skiptir engu því hún er mjög góð.
En ég ætla að segja þetta gott í bili og vonandi er
Blogg-ritstíflunni lokið svo ég geti hennt inn pistli sem fyrst
aftur 
Blessi ykkur öll.....
Kv, Diddi
»
12.01.2007 08:28:23 / jordan
Sælir kæru lesendur

Ég er búinn að taka mér góða pásu frá
Bloggheiminum undanfarin misseri en þeirri góðu pásu
er senn lokið og stefni ég á Come-Back með látum um helgina so stay
tuned
Blessi
ykkur....
Diddi
»
08.12.2006 15:52:28 / jordan
Sæl öll nær og fjær
Þá er föstudagurinn mættur enn einu sinni og ekkert nema
jákvætt við það, jólin nálgast óðfluga og ekkert nema gott um það
að segja, brjálað að gera hjá allflestum sem er alveg frábært,
allir í svo jákvæðu og góðu skapi sem er yndislegt alveg hreint.
Sem sagt niðurstaðan er sú að lífið er skemmtilegt og ef það er
einhver nálægt þér sem er ekki sammála þá skaltu reyna af öllum
sálar og lífsins kröftum að gleðja hann/hana og gera honum/henni
lífið eins skemmtilegt og þú hefur burði til.
Hver kannast ekki við gömlu góðu auglýsinguna "Oft þarf ekki nema
einn hlut.... bla bla bla" hehe.....
Rélegheit í kvöld hjá Diddanum enda vinna á morgunn og svona
sjúkheit. Svo eru ýmis verkefni sem bíða eftir manni sem eru
kannski búinn að sitja alltof lengi á hakanum en ég hef fengið mér
aðstoðarmann sem ætlar að hjálpa mér og veita mér félagsskap í
verkefnum morgundagsins. Hlynur Þór ætlar að brasa með mér og
verðum við án efa á fullu á morgunn í hinu og þessu svo ekki vera
fyrir........
Lenti einmitt í því sl. föstudag að hjálpa Hlyn Tannsa að setja upp
gardínur og setja saman 1stk. kommóðu. Hvernig haldiði að það hafi
endað?
Jú við fengum okkur að sjálfsögðu nokkra kalda á meðan sem endaði
náttúrulega með að verða alltof
margir skemmtilegt
Annað kvöld er svo jólahlaðborð heima hjá Bigga &
Helgu, spennandi..... Verður væntanlega mikið stuð og góður
matur eins og ávallt á Lækjarsmáranum.
Skoðanakönnuninni er lokið og sigraði Bjarni Rúnar með
yfirburðum en hann fékk 46% atkvæði af 160 atkvæðum sem greidd
voru en hinir fengu minna. Ég óska Bjarna innilega til
hamingju með sigurinn og er að vinna í því að koma
verðlaunastefumótinu á koppinn 
Later folks.....
Diddi
»
23.11.2006 16:57:42 / jordan
Sælt veri fólkið 
Snjó kyngdi niður í miklu mæli aðfaranótt sunnudags
mörgum til mikillar ánægju og öðrum ekki. En þar sem við búum
nú á landi sem er kennt við ís, allavega flestir sem lesa
þetta, þá á þessi ofankoma ekkert að koma manni mikið á
óvart !!! En það er samt einhvernveginn þannig með fyrstu snjókommu
hvers vetrar að maður verður alltaf steinhissa og gjörsamlega
ekkert undir það búinn að takast á við snjóinn. En það er langt frá
því að maður sé sá eini því það hafa myndast all langar raðir fyrir
utan hvert einasta dekkjaverkstæði borgarinnar eftir seinustu helgi
og er núna fyrst að byrja að róast á þeim bænum. Þar sem ég veit
fátt eitt leiðinlegra en að bíða í röð þá hef ég ekki ennþá drullað
mér með bílinn í umfelgun, ég hef sko aðgang að nagladekkjum og
allez en það vantar bara þennan herslumun að ég komi mér að
verki.
Skellti mér til Eyja um sl. föstudag á vegum Samskipa en þar
var haldið viðskiptamannaboð fyrir kúnna Samskipa í Eyjum og
var boðið haldið í Höllinni. Heppnaðist það í alla staði mjög vel
og var mjög svo kátt í Höllinni. Var boðið uppá villibráðaveislu
sem var tær snilld og ekkert venjulega gott enda enginn smá kokkur
þarna við völd en það var enginn annar en stórfrændi minn hann
Einar Björn, hann er bara að gera góða hluti í eldamennskunni
drengurinn og bara gaman af því 
Við Hlynur Guðjóns skelltum okkur að sjá James Bond sl.
mánudag og skemtum við okkur hið besta bara enda bara fjári góður
Bond þarna á ferðinni. Væntingarnar voru nú kannski ekki ýkja
miklar þar sem mikið hefur verið deilt á hinn nýja Bond sem leikinn
er af Daniel Craig en hann leysir þetta verkefni bara prýðilega og
er bara með betri Bond-um sem maður hefur séð á undanförnum árum.
Sem sagt toppmynd og Bond, James Bond bara svalur að þessu
sinni..........
Flipp vikunnar fær að þessu sinni hún Íris systir mín en
þrátt fyrir að vera nýkomin frá Tallin í Eistlandi þá skellti hún
sér í 4 daga ferð til Rómar á Ítalíu með Ingunni vinkonu sinni en
þær bókuðu ferðina með eins dags fyrirvara, þetta kallar maður að
flippa 
Heitustu piparsveinar bæjarins eru samkvæmt lítilli
skoðanakönnun sem ég lét Capacent-Gallup gera í síðustu viku eru
eftirfarandi:
1. Bjarni Frændi ( Sá heitasti )
2. Doddi Birgis ( Sá ósvífnasti)
3. Jóhannes Geir ( Sá saklausi!! )
Í kjölfarið hef ég ákveðið að hrinda af stað lítilli
könnun hérna á síðunni um ykkar álit á þessum sveinum og mun
sigurvegarinn vinna stefnumót með einni flottri píu sem verður
ljóstrað upp seinna hver er ????
Þannig að það er um að gera að kjósa og taka þátt í þessum
skemmtilega leik... og mun ég reyna að setja inn myndir af
þessum piltum við fyrsta tækifæri svo léttara sé fyrir ykkur að
dæma um þá!!!
Hér er mynd af Dodda Birgis & Jóhannesi fyrir þá sem
ekki hafa haft tækifæri á að berja þá augum 

Lifið heil og blessi ykkur öll......
Kv, Diddi
»
08.11.2006 13:29:23 / jordan
Já það
mætti segja að það væri svo sannarlega allt að gerazt á
Íslandinu góða. Ekta Ísland núna um helgina, kolklikkað veður á
sunnudaginn, svo slæmt að Herjólfur sigldi ekki einu sinni og
allt innanlands sem millilandaflug lá niðri !!!! Skemmtilegt
allt saman. Listafólkið lætur orðið míga yfir sig í
einhverskonar gjörning en þessi gjörningur hefur heldur betur
vakið upp umræður í þjóðfélaginu en það er nánast hver einasta
manneskja sem hefur skoðun á málinu og þá einmitt spyr maður
sig: Var það ekki bara akkúrat málið með þessum gjörning? Að
vekja athygli á sér og sinni list? Ja maður spyr sig en þrátt
fyrir það þá er þetta svo ógeðfellt og vanskapað eitthvað að
fólk ætti nú að gera eitthvað allt annað til að vekja á sér
athygli undir orðinu List, svona úrgangur á bara að fara í
postulínið en nóg um það......
100ára afmælið hjá Ester & Einari heppnaðist ótrúlega vel og
var þvílíkt skemmtilegt. Við Bjarni stóðum okkur held ég bara vel í
veislustjóra-hlutverkinu og héldum uppi skemmtilegri og góðri
dagskrá þar sem mamma söng braginn Systraþel fyrir systur sína,
Íris systir hélt ræðu, Kristborg frænka fór með tölulegar
staðreyndir um samband mömmu sinnar og pabba, við Bjarni sýndum
myndband sem við tókum upp & Daði Páls klippti til og var það
alger snilld, Sara frænka hélt verðlauna-afhendingu þar sem afhennt
voru verðlaun fyrir Bestu mömmuna og Bezta Pabbann í heimi og voru
sigurvegararnir nokkuð augljósir en virkilega sætt hjá henni Söru
minni og svo tókum við systkinin, Íris & ég, rapp um Steru Stuð
og Einsa Pönk !!
Þannig að það var heldur betur gaman og svo skelltum við okkur öll
frændsystkinin á ball í Höllinni með Landi & Sonum og skemmtum
við okkur öll saman fram undir morgunn & var Eyþór Helgi frændi
langflottastur á ballinu að öðrum ólöstuðum og fór hann á kostum
kjappinn 
BootCampið gengur vel og er það alltaf jafnskemmtilegt að láta
ganga frá sér og fátt betra fyrir sál og líkama, er aðeins að verða
pínu kærulaus hvað mataræðið varðar en það er ekkert mál að taka á
því aftur. Var sko kominn á fínt ról í mataræðinu en svo
einhvernveginn fellur maður í freistni við og við en ekkert
alvarlegt samt.
Féll í annarskonar freistni sl. Föstudag en þá fórum við
Hlynur Guðjóns & Siggi Jóels að borða á Oliver um 19:30 og það
var ekki að sökum að spyrja en að við vorum þar langt frammá nótt
að drekka og sódómast sem endaði náttúrulega með því að við
rúlluðum þar út í annarlegu ástandi allir saman enda erum við
ekkert þekktir fyrir annað en að taka vel á því ef við tökum á því
á annað borð Þetta var mjög fínt kvöld og skemmtir maður sér
aldrei betur en með þessum drengjum, tær snilld!
Sara
frænka kom svo til mín á laugardeginum og var hjá mér frammá
sunnudag en öll hennar familía var á Reykjavíkursvæðinu í
óvissuferð og ekkert gaman fyrir hana að hanga í Eyjum á meðan
þannig að hún kom bara í heimsókn til Didda frænda og var það alveg
meiriháttar gaman, ég á ekkert lítið systkini þannig að Sara hefur
svolítið verið í því hlutverki fyrir mig Fengum við okkur pizzu
á Pizza Company og skelltum við okkur svo í bíó og tókum við hana
Svanhvíti með á myndina “Borat” og verð ég að segja að þetta er
LANG fyndnasta mynd sem ég hef á ævinni séð, alveg mögnuð og hvet
ég ALLA til að fara í bíó og sjá þessa mynd Hún er hverrar krónu
virði sem ekki er hægt að segja um margar myndir í dag þar sem
bíómiðinn er kominn uppí 900.-kr. takk fyrir og góða nótt!! Þetta
er náttúrulega glæpur en ég myndi glaður borga tvöfalt á “Borat”

Jæja þá er komið nóg í bili og ég bið ykkur vel að lifa
og blessa ykkur öll……
Kv, Diddi
»
25.10.2006 21:37:55 / jordan
»
19.10.2006 10:43:51 / jordan
»
12.10.2006 18:33:44 / jordan
Whazzzzzzz upppppppp??
Kjallinn hress að vanda enda ekki yfir neinu að kvarta
nema ég held að endajaxl sé að ganga, sko það byrjaði þannig að ég
sendi Dodda Birgis til Hlyns því það var endajaxl að bögga
hann, Hlynur reif hann úr honum! Svo stuttu seinna þá var Davíð með
endajaxl sem var að angra hann, Hlynur reif hann líka úr honum! Nei
nei svo kemur Hafþór í vinnuna einn daginn með endajaxl
sem er fyrir honum og hann beint til Hlyns sem reif hann reyndar
ekki en lagaði hann eitthvað til sem betur fer fyrir Hafþór!
& nú er ÉG að drepast í endajaxli
sem ég held að sé að koma og þarf örugglega að hringja í Hlyn og
biðja hann að pússa töngina!!!!
Brjálað að gera hjá Hlynsanum bara, vona að hann hafi bara gaman
af vinnunni sinni drengurinn......
Jæja ég er farinn að hita upp, bootcamp eftir 30mín.
Blessi ykkur öll....
Kveðja
Diddi
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
Dagsetning
8. febrúar 2012
|